
Sköpunargleði
Spuni, skrif og sköpun
Námskeiðslýsing
Sköpunargleði er orð sem segir okkur að það er gaman að skapa. Við upplifum mikla gleði þegar við finnum að hugmyndir flæða í máli og myndum og það er eins og opnist inn í nýjan heim sem við vissum ekki að við hefðum aðgang að. Sköpunarkraftur eru annað orð sem segir okkur að við finnum fyrir aukinni orku þegar við erum skapandi. Á þessu námskeiði notum við spuna, ritlist og allskonar aðferðir og leiki til að opna fyrir sköpunarflæðið og segja sögu.
Sköpun er allskonar og alls staðar en á þessu námskeiði vinnum við aðallega með sögur..
Við spinnum sögur úr eigin lífi eða ímyndaðar í máli og riti. Við spinnum, segjum frá og skrifum þær niður. Við notum allskonar kveikjur og leiki sem koma okkur á stað í flæði. Teiknum ,málum, hugleiðum, hlustum á tónlist og notum allskonar hluti sem stökkpall inní sögu eða ævintýraheim. Lærum að hlusta á hjartað frekar en hugann og tengjum við innsæið. Virkjum öll skynfærin eins og sjón, heyrn og lykt sem kveikju að sögu eða minningu.
Farið verður lauslega í uppbyggingu á sögu og karaktersköpun. Unnið er saman í hóp eða í pörum og við deilum og tjáum okkur um verk og upplifun hvers annars.
Markmiðið er að losna við gagnrýnandann í höfðinu með allskonar æfingum sem byggðar eru á spuna, leiklist, sagnalist og ritlist. Við leikum okkur, sköpum og skemmtum okkur. Reynum að nálgast barnið í sjálfum okkur en börn skapa og leika sér án þess að hugsa um hvernig þau koma fyrir eða hvernig lokaútkoman er. Þau upplifa bara gleðina við að skapa. Þannig má segja að sköpunarferlið sé eins konar núvitund eða hugleiðsla þar sem aðeins gleðin í núinu er til staðar.
Námskeiðið er að langmestu leyti verklegt
Kennari er Ólöf Sverrisdóttir
Skráning: iceolof@gmail.com
Næsta námskeið er í mars 2025 í Síðumúla 29. 108 Rvk
Föstudag 28. mars kl 19.30 – 22.00
Laugardag 29. mars kl 13.00 -16.00
Föstudag 4. apríl kl 19.30 -22.00
Laugardag 5. apríl kl 13.00-16.00
UMSAGNIR UM NÁMSKEIÐIÐ
Fjölbreyttar æfingar sem kveikja mismunandi sköpun.
Skemmtileg nálgun og skapandi ferli
Dagurinn var yndislegur, einlægni allra þáttakenda var hvetjandi og gefandi.
Ólöfu tókst að fá alla með og tendra gleði.
Allir náðu að skrifa ótrúlega fína texta…
Ásdís Ingólfsdóttir
Námskeiðið er mjög skemmtilegt. Hóptengingin kom strax á milli okkar allra þegar við byrjuðum að vinna í leik og sköpun. Með hópspuna, æfingum og ritlist.
Ólöf hefur sérstakt lag á að hrista hópinn saman og skapa námd, öryggi og lettleika. Lærði mikið á þessu námskeiði.
Mjög margt sem ég tek með mér heim og mun melta með mér næstu daga..
Heba
Takk fyrir frábært námskeið. Gleð,i sköpun,útrás
Hafdís
Skemmtilegur félagsskapur og fjölbreyttur tími. Gefandi kennari.
Hákon Þór Sindrason
Óllöf er hrein og tær lista og gleði gyðja sem vekur upp æðislega tilfinningu með frábærum æfingum.
<3 Opnaði á flæðið með ýmsum æfingum
<3 tjáning, <3 sögur <3
<3 traust og sköpun
<3 tenging við listagyðjuna mína
<3 mikill lífskraftur og sköpunargleði
Sigrún
SKAPANDI SAMSKIPTI OG FÆRNI Í TJÁNINGU
Þetta námskeið er í boði fyrir fyrirtæki og félagasamtök
Námskeiðslýsing
Á þessu námskeiði lærir fólk styrkja sjálft sig í samskiptum sínum við aðra gengum skemmtilegar og örvandi æfingar.
Farið er yfir hvernig skapandi og jákvæð samskipti geta örvað og hjálpað okkur í vinnu og frístundum. Unnið er með mikilvægi jákvæðrar nálgunar og sveigjanleika í allri samvinnu og samstarfi.
Á námskeiðinu eru gerðar æfingar sem örva skapandi hugsun og þjálfa lifandi samskipti í aðstæðum daglegs lífs.
Með ákveðnum æfingum losnar fólk við heftandi hugsanagang, segir skilið við kröfuharðan innri gagnrýnenda og öðlast frelsi gagnvart sjálfum sér og öðru fólki.
Þannig verða öll samskipti eðlilegri og afsappaðri.
Á námskeiðinu eru bæði skriflegar, munnlegar og verklegar æfingar sem hjálpa þátttakendum að taka skrefið út úr mótuðu og takmarkandi hugsanamynstri inn í flæði sem eykur frelsi og sköpunargleði.
Á námskeiðinu er fjallað um:
-
Það sem heftir mann í samskiptum
-
Innri gagnrýnandann
-
Sköpunargleðina
-
Mikilvægi þess að segja já við lífinu
-
Kjarkinn til að stíga inn í skapandi ferli
-
Að þora að læra af „mistökum“
Ávinningur þinn:
-
Aukin gleði
-
Auðveldari samskipti
-
Meira frelsi í lífinu almennt
-
Aukið sjálfstraust
-
Aukin sjálfsþekking
-
Skapandi hugsun á vettvangi lífsins
Fyrir hverja?
Fyrir alla sem vilja upplifaóöryggi og flæði í samskiptum. Glíma við ákvarðanafælni og svo bara alla sem vilja auka lífsgæði sín.
Nánari upplýsingar: